Hide

Problem N
Fyrirtækjanafn

Languages en is
/problems/fyrirtaekjanafn/file/statement/is/img-0001.jpg
Mynd fengin af flickr.com
Hannes er að byrja með nýtt sprotafyrirtæki þar sem hann ætlar að hjálpa öðrum sprotafyrirtækjum að velja nöfn. Hannes er búinn að skoða mörg fyrirtæki og heldur að hann sé búinn að finna formúlu sem hjálpar hvaða fyrirtæki sem er að verða Einhyrningur (nær virði af $\$ 1\, 000\, 000\, 000$).

Formúla Hannesar er þannig að fyrir hvaða fyrirtæki sem er, ef það fyrirtæki er ekki með samhljóða í nafninu sínu þá mun það fyrirtæki meika það, en Hannes kann ekki að forrita svo hann talar við þig til þess að fá hjálp. Hann vill fá forrit sem tekur við nafnauppástungu og skilar nafninu með öllum samhljóðum fjarlægðum.

Bókstafirnir a, e, i, o, u og y eru sérhljóðar, en aðrir bókstafir eru samhljóðar.

Inntak

Inntakið inniheldur eina línu með nafnauppástungunni $S$. Lengdin á $S$ er mest $10^6$, og inniheldur bara enska bókstafi.

Úttak

Skrifa skal út nafnauppástunguna með öllum samhljóðum fjarlægðum.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

25

Lengdinn á $S$ er mest $1\, 000$

2

75

Engar frekari takmarkanir

Sample Input 1 Sample Output 1
facebook
aeoo
Sample Input 2 Sample Output 2
twitter
ie
Sample Input 3 Sample Output 3
HannesIncorporated
aeIooae